top of page
KLS_LOGO_BLACK vef.png

Námsframboð

Klassíski listdansskólinn er staðsettur í Álfabakka og Grensásvegi. Skólinn skiptist í forskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastig. KLS leggur áherslu á tækni og þjálfun nemenda, sköpun, jafnfram því að kynna þau fyrir sögu dansins og nýjar þróanir á sviði dansins. Jákvæð hvatning og uppbygging nemenda er lykil þáttur í starfi skólans.

Forskóli

FORSKÓLINN ER FYRIR NEMENDUR 3 ÁRA TIL 8 ÁRA OG ER UNDIRBÚNINGUR FYRIR GRUNNNÁM.

Forskólinn er opinn öllum og miðast aldur við fæðingarár. Markmiðið er að þroska og örva hreyfigreind, líkamsvitund og félagsþroska.

Aðal áherslan er að kynna klassískan ballet fyrir nemendum og leggja grunninn að frekara dansnámi.

Kennsla fer fram í Álfabakka 14a á 3.hæð.

_Z0A1554.png

Grunnnám í listdansi

GRUNNNÁMIÐ, FRAMHALD AF FORSKÓLANUM, ER FYRIR NEMENDUR
8 ÁRA TIL 15 ÁRA OG ER UNDIRBÚNINGUR FYRIR FRAMHALDSBRAUT.

Áherslan er á faglega, þroskandi og uppbyggilega kennslu þar sem hver nemandi fær tækifæri til að þroskast og blómstra.
Við kennslu er stuðst við aðalnámskrá. Grunnnámið samanstendur af klassískum ballet, nútímalistdansi, samtímadansi, spuna, táskótækni og sögulegum dansverkum auk þess sem nemendur taka þátt í ýmsum sýningum og eru kynnt fyrir nýjum straumum og stefnum og þróun listdansins.

_Z0A2625.jpg

Framhaldsbraut í listdansi

FRAMAHALDSBRAUTIN ER TVÍSKIPT; KLASSÍSK LISTDANSBRAUT OG NÚTÍMA- OG SAMTÍMA LISTDANSBRAUT. NÁMIÐ ER MJÖG GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR FYRIR ÞÁ SEM ÆTLA SÉR Í LISTDANSNÁM Á HÁSKÓLASTIGI OG HAFA HUG Á AÐ HAFA ATVINNU AF GREININNI, EN NÁMIÐ GETUR EINNIG VERIÐ GÓÐUR UNDIRBÚININGUR FYRIR ÝMSAR AÐRAR STARFSGREINAR.

Nemendur sem hljóta inntöku á framhaldsbraut skulu hafa lokið grunnnámi í listdansi og hafa stundað nám í dansi í einhverju formi eða búa yfir ótvíræðum dans hæfileikum og brennandi áhuga að mati stjórnenda og kennara skólans.Til þess að útskrifast þurfa nemendur að hafa náð fullnægjandi árangri og líkamlegri þjálfun samkvæmt námskrá skólans sem styðst við aðalnámskrá í listdansi, sem m.a. felur í sér danstækni í ballet, nútímadansi, samtímadansi, listdanssögu, danssmíðar og flr.

Framhaldsbrautin er ætluð nemendum á aldrinum 16-25 ára það eru þó undantekningar að bæði eldri og yngri stundi þetta nám í þeim tilfellum er áhugasömum bent á að hafa samband við skrifstofu eða senda tölvupóst á info@ballet.is.

Spring Show-3.jpg

Hlutverk Dansgarðsins er að :

BJÓÐA UPP Á FAGLEGA OG FJÖLBREYTTA DANSKENNSLU, Í KLASSÍSKUM BALLET, NÚTÍMA- OG SAMTÍMADANSI OG SKAPANDI DANSI.

 

GERA DANSKENNSLU OG VIÐBURÐI AÐGENGILEGA FYRIR BÖRN OG UNGT FÓLK.

 

EFLA UMRÆÐU UM SVIÐSLISTIR Á MILLI UNGRA ÁHORFENDA OG LISTAMANNA.

 

SAMEINA OG STYÐJA LISTAMENN SEM ERU AÐ VINNA MEÐ DANS OG SVIÐSLISTIR FYRIR UNGT FÓLK OG ALLA ÁHORFENDUR.

 

VINNA MEÐ ÖÐRUM STOFNUNUM TIL AÐ SVARA BETUR SAMFÉLAGSÞÖRFUM Á SVIÐI DANS- OG SVIÐSLISTAR.

Klassíski listdansskólinn

Álfabakki 14a
109 Reykjavík

Grensásvegur 14,

108 Reykjavík

info@ballet.is 

Sími: 612-1221 


 

Óskandi

Eiðistorg
170 Seltjarnarnes.

oskandi@oskandi.is


 

  • Facebook
  • Instagram
  • Facebook
  • Instagram

Dans fyrir alla 

dansgardurinn@gmail.com


 

  • Facebook
  • Instagram
MRN_IS_2L_CMYK_2022.png

© 2023 by Train of Thoughts. Proudly created with Wix.com

bottom of page