Starfsfólk Dansgarðsins
Stjórnedur
Hrafnhildur Einarsdóttir
Skólastjóri Klassíska listdansskólans
Hrafnhildur Einarsdóttir tók við skólastjórn Klassíska listdansskólans haustið 2017. Sama ár stofnaði hún Dansgarðinn sem er regnhlífarverkefni sem heldur utan um Klassíska listdansskólann, FWD Youth Company, Dans fyrir alla og Óskandi. Hrafnhildur útskrifaðist með BA í listdansi og danssmíði frá Trinity Laban í London vorið 2009. Hún hefur unnið sem sjálfstæður danslistamaður og danshöfundur, bæði með sín eigin verkefni en einnig hefur hún unnið með danshópum bæði hérlendis og erlendis. Hún er einnig partur af Interferencias research project on performance art. Hrafnhildur hefur setið í stjórn Reykjavík Dance festival frá árinu 2011 en einnig hefur hún setið í stjórn FÍLD- Félags íslenskra listdansara og stjórn Samtaka um danshús. Hrafnhildur hefur kennt lengi við Klassíska listdansskólann, en hún hefur einnig kennt námskeið fyrir börn og fullorðna á Ítlaíu, Svíþjóð, Noregi og Mexíkó. Hrafnhildur brennur fyrir því að byggja upp sterkara danssamfélag á Íslandi og halda áfram að byggja upp menntakerfið í listdansi fyrir börn og unga dansara hérlendis auk þess að auka aðgengi að dansi fyrir almenning og öll börn.
Netfang: hrafnhildur@ballet.is
Guðrún Óskarsdóttir
Skólastjóri Óskanda
Guðrún Óskarsdóttir er skólastjóri og eigandi Óskanda; dansari og danskennari svo og jógakennari með sérmenntun í meðgöngu-/mömmujóga, krakkajóga og jóga fyrir börn með sérþarfir. Hún bætti við sig námi í ungbarnanuddi frá Liddle Kidz og hreyfiþroska barna frá Baby Bare, auk þess stundaði hún kennaranám hjá Creative Dance Center sem byggir kennslufræði sína á hreyfiþroskaferli barna. Hún sótti einnig doulunám við Bastyr University/Simkin Center í Seattle og námskeið hjá Penny Simkin um áhrif kynferðisofbeldis í æsku á barnshafandi mæður. Guðrún er með réttindi að kenna PBT tíma og með MA gráðu frá listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Guðrún stundar nám við School for Body-Mind Centering.
Guðrún hóf dansnám sitt við Ballettskóla Guðbjargar Björgvins, útskrifaðist frá framhaldsbraut Listdansskóla Íslands, lauk diplóma frá Kungliga Svenska Balettskolan í Stokkhólmi og starfsþjálfun frá Íslenska dansflokknum og Dansk dansetheater í Kaupmannahöfn. Auk þess sem hún hefur sótt fjölda dansnámskeiða. Hún dansaði með Íslenska dansflokknum og vann meðal annars með danshöfundunum Rami Be’er, Didy Veldman, Stephen Shropshire, Jóhanni Frey Björgvinssyni og Helenu Jónsdóttur. Hún stofnaði danshópinn Darí Darí Dance Company ásamt tveimur öðrum dönsurum og hefur fengið tækifæri til að vinna sjálfstætt með danshöfundum, litlum dansflokkum og verið í stjórn hátíða og stofnana.
Guðrún hefur mikinn áhuga á hreyfiþroska barna fyrsta árið og hvernig hreyfing og umhverfið gegna mikilvægu hlutverki í þroska barnsins. Guðrún hefur unun af því að vera með nemendum, leiða aðra kennara í starfi og eiga í góðum samskiptum við foreldra. Henni finnst yndislegt að fylgjast með nemendum þroskast og sjá litlu sigrana sem eru þó svo stórir.
Netfang: gudrun@oskandi.is
Ernesto Camilo Aldazabal Valdes
Deildarstjóri nútímalistdansbrautar Klassíska listdansskólans og kennari
Ernesto Camilo er fæddur á Kúbu árið 1990. Hann er útskrifaður úr La Escuela Nacional de Arte (Listdansskóli á Kúbu) sem danskennari og dansari. Árið 2008 hóf hann störf við dansflokkinn „Danza Espiral“ á Kúbu. Camilo fór til Mexikó sem kennari og dansari árið 2010. Árið 2011 kom til Íslands þar sem hann tók þátt í mismunandi sýningum og námskeiðum. Árið 2012 vann hann í eitt ár i Point Dansstudíói á Akureyri sem nútíma danskennari. Á þeim tíma vann hann einnig tvö dansverk með Önnu Richardsdóttur, Inanna, Ereskigal, Oggun, Freyja og barnaverk. Árið 2013 hóf hann störf sem nútímadans kennari í Klassíska listdansskólanum síðan og er þar enn. Á þeim tíma Camilo kenndi fyrir Salsaiceland og var boðið að dansa og kenna á tveimur salsacongress í Noregi og í Svíþjóð. Árið 2016 vann Camilo sem danshöfundur og dansari með Forward Youth Company í dansverki hans RITMO. Hann lék í áramótaskaupinu 2016. Camilo hefur unnið sem dansari og leikari fyrir Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið, íslenska Dansflokkinn og íslensku Óperuna. Árið 2019 var hann tilnefndur Leikari ársins í Sögur -Verðlaunahátíð Barnanna og dansari ársins á Grímunni.
Netfang: camilo@ballet.is
Yannier Oviedo
Deildarstjóri klassískulistdansbrautar Klassíska listdansskólans og kennari
Yannier Oviedo er fæddur og uppalinn í Matanzas á Kúbu. Hann byrjaði að dansa ballet 8 ára og vann meðal annars til silfur og gullverðlauna í International Ballet Competition í Havana. Yannier útskrifaðist sem balletdansari og kennari frá Ena háskólanum í Havana árið 2010 og var hann ráðinn sem dansari í Ballet de Camaguey. Árið 2011 var hann valinn af stórum hóp dansara til að dansa í Ballet Revolucion og dansaði hann með þeim um gervallan heim. Yannier hefur verið á Íslandi síðan 2013, kennt ballet í nokkrum skólum, dansað í Borgarleikhúsinu og með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Katla Þórarinsdóttir
Deildarstjóri grunnnáms og forskóla í Klassíska listdansskólanum, og kennari
Katla lærði og þjálfaði líkama sinn í klassískum ballet frá barnæsku og hóf snemma að kenna undir leiðsögn Guðbjargar Asdridar Skúladóttur stofnenda Klassíska listdansskólans. Kennslan átti hug hennar allan og útskrifaðist hún frá Kennaraháskólanum 2001. Síðar þegar Katla uppgvötðai nútímadans lá leið hennar í Laban Trinity, London þar sem hún útskrifaðist af masterstigi í dansi og kennslu 2006. Síðan þá hefur hún unnið sem atvinnudansari, danshöfundur og danskennari. Katla stofnaði dansflokkinn Dari Dari Dance Company og framleiddi og sýndi með þeim þrjú fullgerð verk sem öll voru sýnd á danshátíðum víðsvegar um Evrópu. Þrátt fyrir þessa velgegni sló alltaf hjarta trúðsins í líkama nútímadansarans. Þegar Katla vann á Ítalíu sem dansari kynntist hún sirkusnum betur og leið ekki á löngu þar til hún var farin að skína skært á stæðstu götulistahátíðum í Evrópu sem jafnvægis akróbati og loftfimleikadansari. Árið 2009 stofnaði hún Sirkus Íslands ásamt öðrum og stýrði þeim hóp þar til 2012 þegar hún ákvað að snúa sér að öðrum verkefnum. Árið 2015 byrjaði hún að vinna með Fidget Feet írskum loftfimleika og sirkus flokki að verkinu Fjaðrafok sem framleitt var í samstarfi við Bíbí og Blaka. Síðan þá hefur verkið vafið upp á sig og hefur þegar verið sýnt yfir 100 sinnum í 10 löndum. Katla hefur unun að því að kenna og hefur kennt við Klassíska listdanssdólann nú Dansgarðinum í yfir 20 ár og hlakkar alltaf jafn mikið til að taka á móti nýjum hópi nemenda að hausti og fá að fylgja þeim um heim dansins.
Aude Busson
Verkefnastjóri
Aude Busson er verkefnastjóri Dansgarðsins siðan 2017. Þar er Aude að sjá um „Dans fyrir alla“ og með markmið að gera dans aðgengilegri. Aude sér um dansfræðsludaga fyrir grunnskólanna, Mjóddamamma, Dansdagur á Barnamenningarhátið, Forward Youth Company og nemendarráð Klassíska Listdansskólans. Aude útskrífaðist með B.A úr sviðshöfundabraut Listaháskólans árið 2011. Hún hafði þar á undan lokið við háskólanám DEUG í leikhús og kvikmyndafræðum frá Háskólanum Rennes II, í Frakklandi, 2001. Frá útskrift, 2011, hefur Aude unnið sem leikstjóri, leiðbeinandi og verkefnastjóri. Hún hefur áhuga á að skapa sýningar og viðburði sem byggjast á þátttöku áhorfenda, þar sem flytjendur eru ekki atvinnumenn eða eru fyrir/með börnum. Hún hefur unnið með nokkrum sviðslistahópum og einnig að eigin listaverkum, til dæmis Ég elska Reykjavík, fjölskyldu göngusýning, 2014. Aude hefur siðan 2013 verið í stjórn Assitej á Íslandi. Hún hefur tekið að sér listrænni stjórnun Ungi hátiðinni árið 2014 og fékk fyrir það tilnefningu til Menningarverðlauna DV. Aude var líka verkefnastjóri fyrir Unglingurinn í RDF frá 2014-2016.Netfang: dansgardurinn@gmail.com
Ellen Harpa Kristinsdóttir
Skrifstofa Klassíska listdansskólans
Ellen hóf dansnám í Ballettskóla Guðbjargar Björgvins. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 2005. Eftir það tók við eitt ár á nútímabraut í Klassíska listdansskólanum og þaðan lá leið hennar til London þar sem hún lauk BA-prófi í listdansi frá Trinity Laban, 2010. Síðan þá hefur hún skipulagt dansnámskeið og sýningar víðsvegar. Hún kennir ballet, nútímadans og skapandi dans. Árið 2018 útskrifaðist hún með MA-gráðu í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands.
Netfang: info@ballet.is
Kennarar- skólaárið 2023-2024
Alejandra P. De Avila
Kennari
Bakgrunnur Alejandra er í tónlist og leikhúsi og hún er líka menntaður kennari í tónlistar- og hreyfifræðslu. Sem kennari og rannsakandi hefur hún sérhæft sig í rödd og hreyfingu með sómatískri nálgun sem leitar að jafnvægi í líkamanum og stefna að heilindum mannlegrar tjáningar.
Árið 2017 stofnaði hún Sila II Act, fyrirtæki sem veitir skapandi vinnustofur og listrænar rannsóknir. Í gegnum Sila II Act I hefur hún ekki aðseins þróað sína eigin fræðsluaðferð sem dreifist víða áhorfendur, allt frá áhugamönnum til atvinnumanna en hefur einnig leitt námskeið í fjölbreyttum löndum eins og, Austurríki, Grænland, Bandaríkin, Ísland og Svíþjóð. Frá 2017 – 2019 starfaði ég sem kennari í tónlist og hreyfingu Rhythmical Education við Listaháskóla Íslands. Verkefni hennar fól í sér að leggja lokahönd á námskrá fyrir BA-nema.
Með listaferli sínum hefur hún skapað, framleitt og leikið í sínum eigin sýningum í sjálfstæðum leikhúsum og leiksviðum eins og Lalish TheatreLabor, AlteSchmiede, Interkulturelles Theatre og MuThtheater í Vín í Austurríki; Tjarnarbíó, Gamblabíó, Gallerí Kjarvalstaðir, Listaháskóli Íslands í Reykjavík.
Eftir að hún varð móðir hefur hún snúið aftur til áhugamannanáms, kennslu dans og rödd. Á síðasta ári hefur hún einnig tekið við stöðu hjá leikskólakennsla Music & Movement (Eurhythmics) fyrir ung börn aldrinum 18 mánaða - 5 ára.
Alma Kristín Ólafsdóttir
Kennari
Alma Kristín hóf balletnám sitt í Klassíska listdansskólanum, árið 2000, þá fjögurra ára gömul. Hún útskrifaðist af framhaldsbraut skólans árið 2012. Árið 2016 var danshópurinn FWD Youth Company stofnaður og var Alma Kristín meðlimur í þeim hópi þar til árið 2021. Hún hefur einnig sótt sumarnámskeið erlendis, bæði í Kaupmannahöfn og London. Alma Kristín hefur kennt klassískan ballet við skólann síðan árið 2015. Hún er menntaður hjúkrunarfræðingur og hefur starfað á hjartadeild Landspítalans. Nú stundar hún ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands.
Amanda Líf Fritzdóttir
Kennari
Amanda Líf hefur kennt nemendum á öllum aldri frá 3 til 19 ára samtímadans, skapandi dans og ballett síðan hún var 17 ára. Hún hefur mest kennt í Dansgarðinum, Óskanda og Klassíska listdansskólanum en einnig hefur hún kennt við Danslistarskóla JSB, Ballettskóla Eddu Scheving og Mýrarhúsaskóla/Valhúsaskóla.
Amanda útskrifaðist af listdansbraut Danslistarskóla JSB árið 2018 og af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2021.
Amanda hefur alla tíð elskað hreyfingu og list svo dansinn hefur verið fullkomin blanda af þessu tvennu, hún elskar að vinna með börnum og unglingum og hefur mikinn áhuga á samskiptunum sem fara þar fram. Hún hefur meðal annars unnið sem dansari í Joensuu Finnlandi og lengi vel vann hún á leikskóla.
Andrea Urður Hafsteinsdóttir
Kennari
Andrea Urður hóf balletnám sitt við Balletskóla Sigríðar Ármann þegar hún var fjögurra ára gömul. 9 ára færði hún sig yfir í Listdansskóla Íslands og hefur dansað með FWD Youth Company frá árinu 2017. Andrea byrjaði að kenna ballet árið 2014 í Klifinu sem er skapandi setur fyrir ýmis listnámskeið, þar kenndi hún nemendum á aldrinum 3-7 ára. Sumarið 2016 skipulagði Andrea og stjórnaði skapandi námskeiði fyrir börn á aldrinum 5- 12 ára þar sem lögð var mikil áhersla á skapandi dans ásamt öðrum listgreinum. Haustið 2019 byrjaði Andrea að kenna í forskólanum hjá Ballettskóla Guðbjargar Björgvins, núna Óskandi, og í grunnnáminu hjá Klassíska listdansskólanum. Andrea Urður er einnig nemi í lögfræði við Háskóla Íslands.
Asako Ichihashi
Kennari
Asako stundaði ballettnám í Japan þar sem hún ólst upp. Þaðan lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem hún lauk B.F.A. prófi í listdansi árið 1991 frá Shenandoah University í Virginíu. Að loknu námi dansaði hún með Dayton Contemporary Dance Company dansflokknum í Ohio í Bandaríkjunum.
Asako flutti til Íslands árið 1993 og stofnaði Ballettskóla á Akureyri sem hún rak um sjö ára skeið. Hún hefur kennt einnig á píanó við Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Eftir hún flutti suður, hefur hún kennt listdans við Listdansskóla Íslands, Listdansskóla Hafnarfjarðar og Óskanda og tónlist og hreyfingu í Leikskóla Fögrubrekku í Kópavogi.
Vorið 2008 lauk hún kennsluréttindanámi við Kennaraháskóla Íslands og er með framhaldsskólakennararéttindi í listdansi. Vorið 2021, lauk hún meistaranámi í listkennslu við Listaháskóla Íslands.
Auður Ragnarsdóttir
Kennari
Auður er danskennari og danshöfundur að mennt. Hún hóf dansnám ung að aldri í klassískum ballett og djassballett. Hún flutti til Íslands 2002 og hóf þá dansnám í Klassíska listdansskólanum. Auður lauk framhaldsbraut Klassíska listdansskólans í nútímadansi 2009. Þaðan fór hún í B.F.A. nám í danssmíði hjá Concordia Háskóla í Montréal í Kanada og síðar lauk hún M.Art.Ed. gráðu í sviðslistakennslu hjá Listaháskóla Íslands. Auður hefur stýrt ýmsum sjálfstæðum verkefnum bæði hérlendis og erlendis. M.a. hélt hún utan um ungmennaskipti styrkt af Erasmus+ fyrir nemendur í Klassíska listdansskólanum þar sem farið var til Portúgal og sett upp sýning í samstarfi við tónlistarskóla þar. Auður elskar dans í öllum sínum birtingarmyndum og hefur einnig lagt stund á loftfimleika, súlufimi og hip hop á síðustu árum.
Bjartey Elín Hauksdóttir
Kennari
Bjartey er dansari og danskennari. Hún útskrifaðist af dansbraut
Listaháskóla Íslands vorið 2021. Fyrir það æfði hún ballet og
nútímadans í Klassíska Listansskólanum frá 4 ára aldri. Bjartey hefur
verið danskennari í 4 ár og kennt börnum og unglingum á öllum aldri.
Meðfram því hefur hún unnið sem atvinnudansari bæði hérlendis og
erlendis.
Emma Eyþórsdóttir
Kennari
...
Eydís Rose Vilmundardóttir
Kennari
Eydís Rose Vilmundardóttir er sjálfstætt starfandi dansari og listamaður. Hún útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Hún tók sér árspásu frá náminu á Íslandi til að stunda dansleikhúsnám í Englandi 2014-2015 undir stjórn Jasmin Vardimon Company. Hún hefur fengið þann heiður að vinna með listamönnum á borð við Jasmin Vardimon, Athanasia Kanellopoulou, Marilena Dara, Mafalda Deville, Sögu Sigurðardóttur og Lucie Vigneault.
Guðrún Svava Kristinsdóttir
Kennari
Guðrún Svava Kristinsdóttir er útskrifaður dansari og danskennari frá Martha Graham School of Contemporary Dance í New York borg, hún er einn af fáum kennurum með þessa menntun í Evrópu. Guðrún Svava var einnig dansari hjá Graham II, nemendadansflokki Mörtu Graham Dansflokksins sem hún stundaði einnig þjálfun hjá.Guðrún Svava er einnig jógakennari og Pilates kennari og leggur sérstaka áherslu á góða og rétta líkamsbeitingu út frá líkamsbygging hvers og eins, en hún hefur sótt fjölmörg námskeið í því hvernig megi koma í veg fyrir og endurhæfa meiðsli með dansara í huga. Guðrún Svava hefur undanfarin ár kennt og byggt upp eigin námskeið við Listaháskóla Íslands í leiklistardeild, dansdeild og tónlistardeild, og bjó til sérstakt námskeið í anatómíu fyrir dansara sem hún hefur kennt fyrir alla árganga síðan 2013.Guðrún Svava er einnig verkfræðingur að mennt og útskrifaðist nýlega frá Cornell háskólanum í New York með tvöfalt MS í upplýsingafræði og upplýsingafræði. Systems.Vegna fjölbreyttrar reynslu sinnar í tækni- og listageiranum leggur hún mikið upp úr námskeiðum sínum svo hver einstaklingur fái að njóta sín andlega, líkamlega og vitsmunalega. Guðrún Svava leggur mikið upp úr tækniþróun dansara og notar áralanga reynslu frá New York í þessu samhengi. Hún leggur einnig áherslu á takt og tónlistarnæmni nemenda sinna í bland við flutning og leikræna tjáningu danssins.
Hrund Elíasdóttir
Kennari
Hrund Elíasdóttir hefur starfað hjá Klassíska Listdansskólanum frá árinu 2013. Hún kennir ballett og hefur kennt öllum aldurshópum. Hrund hóf ballettnám 5 ára gömul hjá Ballettskóla Eddu Scheving og flutti sig yfir í Klassíska Listdansskólann 16 ára gömul, en hún útskrifaðist þaðan af Listdansbraut árið 2010. Einnig stundaði hún nám við l‘Académie Américaine de Danse de Paris í Frakklandi. Samhliða kennslunni er hún með BA gráðu í bókmenntafræði og frönsku frá Háskóla Íslands. Hún sótti ballettkennara námskeið hjá Central Pennsylvania Youth Ballet sumarið 2017 og var hluti af FWD youth company veturinn 2017-18.
Júlía Kolbrún Sigðurðardóttir
Kennari
...
Katie Hitchcock
Kennari
Katie Hitchcock er sjálfstætt starfandi dansari, upprunalega frá Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hún lærði nútímadanstækni í Orange Coast College og dans, leikhús og sviðsframkomu í Berkley, háskólanum í Kaliforníu. Katie flutti til Íslands 2017 og var fljót að tengjast danslífinu á Íslandi með því að dansa með ungmennadansflokknum Forward 2018-2022.
Í ár hefur hún kennt ballett fyrir börn og fullorðna í Óskanda og er að þróa þriðja hlutann í röð sólóverka „Disposable dances“ sem hún hefur samið.
Sara Margrét Ragnarsdóttir
Kennari
Sara Margrét útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Eftir útskrift hefur hún unnið að ýmsum verkefnum með fjölbreyttum hópi listamanna í sjálfstæðu danssenunni á Íslandi og í Danmörku, bæði sem flytjandi og höfundur. Samhliða þessu hefur Sara kennt börnum og unglingum ballet, nútímadans og skapandi dans.
Sara Katrín Kristjánsdóttir
Kennari
Sara Katrín er fædd og uppalin í Reykjavík og byrjaði 5 ára gömul í ballet hjá Eddu Scheving. Seinna færði hún sig yfir í fimleika og æfði þá með fimleikafélagi Gerplu í nokkur ár. Á unglingsaldri snéri hún sér aftur að ballett hjá Klassíska listdansskólanum og útskrifaðist þaðan árið 2011 af nútímabraut. Sara Katrín kennir 3 til 7 ára börnum ballet og samtímadans hjá Klassíska listdansskólanum og hefur gert síðan árið 2014. Einnig kenndi hún samtímadans í leikskólum árið 2018 í gegnum Dansgarðinn. Árið 2015 vann hún hjá Hreyfingu í 2 ár sem hópatímakennari og kenndi þar hópatíma allt frá Zumba yfir í styrktar- og þrektíma. Á svipuðum tíma öðlaðist hún einnig Zumba og Zumba-kids réttindi. Árið 2017 lauk hún B.Sc gráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfar nú sem íþrótta- og heilsufræðingur í Heilsuborg. Að auki æfir Sara Katrín Crossfit og langhlaup og stefnir á að hlaupa Laugaveginn 2019 (ofur maraþon - 55 km.) annað árið í röð ásamt því að stefna á burtfarapróf í píanóleik við fyrsta tækifæri.
Sóley Frostadóttir
Kennari
Sóley Frostadóttir starfar sem danshöfundur, kennari og ritstjóri. Hún útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands 2017. Í MA námi sínu í ritstjórn og útgáfu lagði hún áherslu á listtímarit, listaverkabækur og bókverk. Hún er ritstjóri tímaritsins Dunce, sem fjallar um kóreografíu og gjörningalist. Hún lauk MFA námi í sviðslistum við Listaháskóla Íslands 2022. Sóley vinnur þvert á miðla og hefur sýnt verk sín m.a á Reykjavík Dance Festival í Mengi, á Barnamenningarhátíð, Plöntutíð, í Midpunkt, Gerðarsafni, Listasafni Reykjavíkur og í Ásmundarsal.
Sóley Ólafsdóttir
Kennari
Sóley Ólafsdóttir kennir nútímadans hjá Óskanda. Sóley Ólafsdóttir starfar einnig sem dansari, danshöfundur, listskautaþjálfari og fjallaleiðsögumaður. Bakgrunnur Sóleyjar kemur aðallega frá þjálfun á listskautum. Sóley stundaði listskauta af miklu kappi til 16 ára aldurs en þá hóf hún nám við Menntaskólann í Reykjavík og einnig nám við framhaldsbraut Jazzballettskóla Báru, JSB. Eftir stúdents- og diplómupróf hóf Sóley háskólanám við samtímadansbraut LHÍ og útskrifaðist þaðan vorið 2022. Sem hluta af námi sínu við LHÍ tók hún skiptinámsönn við dansbrautina í KHiO, listaháskólanum í Osló. Eftir útskrift hefur Sóley sótt sér reynslu erlendis, m.a. sem starfsnemi með dansflokknum í Gautaborgaróperunni og Carte Blanche, alþjóðlega samtímadansflokki Noregs. Sóley vinnur hörðum höndum í sjálfstæðu danssenunni, þar sem hún vinnur í samstarfi við nokkra hópa og tekur þátt í að skapa og koma fram í spennandi og skemmtilegum dans- og dansleikhúsverkum.
Tersa María Era
Kennari
...
Þorbjörg Jónasdóttir
Kennari
Þorbjörg byrjaði að stunda ballett í ballettskóla Sigríðar Ármann. Leiðin lá síðan í Listdansskóla Íslands þar sem hún var í sjö ár og útskrifaðist af grunnskóladeild árið 2018. Henni bauðst síðan þriggja ára skólavist í San Francisco Ballet School. Hún hefur farið á margvísleg sumarnámskeið um ævina líkt og í París, London, Englandi og Bandaríkjunum.
Kennarar sem hafa starfað hjá Dansgarðinum
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Alexey S. Mandrikov
Kennari
2001 lauk Bolshoi ballettakademíunni sem ballettdansari. Dansaði í leikhúsi klassíska ballettsins Kasatkina og Vasilev. Atlantic ballet theatre í Kanada. Rahvusooper Eistland. Og var gesta sóló dansari fyrir marga dansflokka í heiminum. 2009 lauk Bolshoi ballettakademíunni sem ballettkennari/danshöfundur. Var kennari í mörgum skólum í Rússlandi, Japan, Portúgal. Hélt meistaranámskeið í öðrum löndum um allan heim.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Anna Kolfinna Kuran
Kennari
Anna Kolfinna Kuran er sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur. Hún útskrifaðist með BA- gráðu af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013. Eftir útskrift hefur hún unnið að ýmsum verkefnum í samstarfi við aðra eða að eigin verkefnum bæði sem höfundur og flytjandi. Verk hennar taka á sig ólíkar myndir þar sem flæði milli miðla, greina og aðferða er greinilegt, megin áherslan liggur þó í því sjónræna og líkamlega. Gegnumgangandi þemu í verkum hennar eru að rannsaka viðfangsefni sem við koma líkama konunnar og samtíma femínisma. Anna Kolfinna er meðal stofnenda sviðslistahópanna Dætur og Kraftverk sem unnið hafa að ýmsum sýningum síðustu ár. Undanfarin þrjú ár hefur Anna Kolfinna einblínt á persónulegt verkefni sem ber titilinn Konulandslag þar sem hún rannsakar tengsl milli kyns og rýmis. Auk þessa verkefnis hefur Anna Kolfinna einnig fengist við samstarfsverkefni við aðra listamenn, þar á meðal kom hún fram sem flytjandi í verkinu Atómsstjarna sem sýnt var í Ásmundarsal á Listahátíð 2018 og samdi verkið Allar mínar systur fyrir ungmennadansflokkinn Forward Youth Company sem sýnt var á hátíðinni Únglingurinn í Hafnarhúsinu 2018. Vorið 2017 lauk hún fræðilegu meistaranámi við NYU í performance fræðum (e. performance studies).
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Díana Rut Kristinsdóttir
Kennari
Díana Rut er sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2015 af sviðlistabraut með áherslu á samtímadans. Frá útskrift hefur hún unnið við mjög fjölbreytt verkefni, allt frá því að vera danshöfundur tónlistarmyndbanda til þess að koma fram í þverfaglegum sviðslistasýningum og danssýningum. Meðal tónlistarmyndbandaþar sem Díana hefur verið danshöfundur eru Samaris („Wanted 2 say“) og Seven Lions Creation featuring Vök. Samhliða hefur hún kennt samtímadans í Listaháskóla Íslands, Klassíska listdansskólanum og Listdansskóla Íslands. Díana starfaði einnig um tíma sem yfirþjálfari í bardagaíþróttafélaginu Mjölni þar sem hún sá um kennslu í hreyfiflæði. Á síðasta ári festi Díana Rut kaup á stórum sveitabæ á Suður-Sjálandi í Danmörku ásamt manni sínum Erlendi sem er klíniskur sálfræðingur, þar ætla þau að sameina sérsvið sín til að skaparannsóknarvettvang fyrir listir, geðrækt og hreyfingu.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Gígja Jónsdóttir
Kennari
Gígja Jónsdóttir er danshöfundur, danskennari og myndlistarkona. Hún útskrifaðist af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013, stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík 2015-2016 og lauk meistaranámi í myndlist frá San Francisco Art Institute vorið 2018 þar sem hún einbeitti sér að gjörninga- og videólist. Gígja hefur tekið þátt í
fjölda sýninga hérlendis og sýnt verk sín á Reykjavík Dance Festival, LungA listahátíð, Act Alone, í Mengi, Tjarnarbíói, Harbinger gallery, Listasafni Reykjavíkur, Midpunkt o.fl. Samstarfssýning hennar og Guðrúnar Selmu Sigurjónsdóttur, A Guide to the Perfect Human var tilnefnd til Grímuverðlauna sem Sproti ársins árið 2017. Þátttökusýning hennar WikiHow to Start a Punk Band sem var frumsýnd í Mengi árið 2017 hefur þróast sem pönknámskeið sem Gígja hefur haldið fyrir unglinga, ungar konur, eldri borgara og á næstunni, börn. Gígja hefur kennt nútímadans, klassískan ballett, spuna, skapandi ferli og gjörninga fyrir mismunandi aldurshópa, frá 6 ára upp í fullorðna. Gígja hefur kennt í Dansgarðinn, í Óskandi og Dans fyrir alla, Leynileikhúsinu, og í Listaháskóla Íslands.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Hildur Björk Möller
Kennari
Hildur Björk hóf störf hjá Klassíska listdansskólanum árið 2009 og hefur aðallega verið með táskókennslu ásamt því að kenna klassískan ballet. Hildur hefur í gegnum tíðina kennt flestöllum aldurshópum. Hún hefur verið að kenna nemendum sem eru að taka sín fyrstu skref á táskóm og þeim sem eru lengra komnir. Hildur Björk er fyrrum nemandi Klassíska listdansskólans og útskrifaðist þaðan árið 2009. Árið 2010 tók hún þátt í balletsýningu í London með National Youth Ballet. Hildur Björk hefur kennt ballet samhliða háskólanámi og vinnu í gegnum árin. Hún hefur lokið B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.A. í Náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Hildur Björk hefur unun af því að kenna og nýtur þess að sjá framfarir nemenda sinna.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Inga Maren Rúnarsdóttir
Kennari
Inga Maren Rúnarsdóttir er dansari og danshöfundur. Hún hefur unnið hjá Íslenska dansflokknum frá 2011 og með öðrum danshöfundum á Íslandi og erlendis. Hún hlaut BA gráðu frá London Contemporary Dance School, er með kennsluréttindi frá David Zambrano auk þess sem hún er menntaður yoga kennari. Inga Maren sýndi nýlega sólóverkið ÆVI og barnaverkið Dagdrauma.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Íris Ásmundardóttir
Kennari
Eftir útskrift af klassískri listdansbraut frá Listdansskóla Íslands, meðfram opinni braut hjá Menntaskólanum við Hamrahlíð, hélt Íris út til London til þess að stunda nám við Rambert School of Ballet and Contemporary Dance. Þar fékk hún meðal annars tækifæri til að sýna í Royal Opera House og vinna með danshöfundum á borð við Julie Cunningham, Kim Brandstrup, Cameron McMillan og Vidya Patel. Íris útskrifaðist frá Rambert með ‘First Class BA Hons Degree’ sumarið 2021. Nýverið kláraði hún mastersnám í ‘performance and professional practices’ þar sem hún dansaði með Emergence Postgraduate Dance Company í Manchester undir listrænni stjórn Joss Arnott. Þar fór hún á sýningaferðalag um Bretland, og sýndi ný verk eftir Kevin Finnan, Gosia Mielech og Vidya Patel, ásamt enduruppsetningu á dansverkinu Wild Shadows eftir Joss Arnott. Íris hefur einnig fengið inngöngu í og sótt sumarnámskeið hjá Boston Ballet, American Ballet Theatre, Alonzo King LINES Ballet og Mark Bruce Company.
Sumarið 2021 öðlaðist Íris kennararéttindi í ‘barre’ styrktarþjálfun frá The Barre Collective í London.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Ólöf G. Söebech
Kennari
Ólöf G. Söebech stundaði nám við klassíska Listdansskólann og síðar við Codarts Rotterdam (þá Rotterdamse Dansacademie) á danskennarabraut. Hún lauk einnig meistaragráðu í umhverfisfræðum við Vrije Universiteit Brussel. Hún býr yfir fjölbreyttri reynslu hvað varðar menntun, þekkingu og hæfni sem spannar allt frá sviðslistum, kennslu og verkefnastjórn til rannsókna innan háskólasamfélagsins á sviði evrópskrar umhverfisstefnu. Hún starfaði meðal annars sem verkefna og æfingastjóri hjá Íslenska dansflokknum 2004-2006. Í dag starfar hún við Vrije Universiteit Brussel. Ólöf kenndi ballet og nútímadans við KLS frá 1995 til 2005 og hefur verið viðriðin skólann frá því að hann var nýstofnaður.
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Sæunn Ýr Marinósdóttir
Kennari
Sæunn stundaði nám við Listdansskóla Íslands, lauk stúdentsprófi frá Konunglega Sænska Ballettskólann og útskrifaðist síðan frá Hungarian Dance Academy með BA gráðu í klassískum ballet árið 2010.Sæunn dansaði fyrir Hungarian National Ballet, Dortmund Theater og Peter Schaufuss Balleten. Þar dansaði hún í fjölda verka, m.a. La Bayadère (Petipa), Sleeping Beauty, Nutcracker, Swan Lake, Michael I’m bad, Romeo and Juliet, The King, Manden der ønskede sig en havudsigt (Schaufuss), In the Middle Somewhat Elevated (William Forsythe), Jewels (George Balanchine) og Hamlet (Xin Peng Wang).Á árunum 2011 til 2016 kenndi Sæunn við Listdansskóla Íslands og Klassíska Listdansskólann. Þar kenndi hún nemendum frá 6. stigi og framhaldsbraut, en sáeinnig um uppsetningu sýninga (Klassíski Listdansskólinn), undirbúning fyrir sólókeppnir, auk einkatíma.Frá árinu 2018 hefur Sæunn starfað sem barre- og ballettkennari í Luxemborg. Á þeim tíma lauk hún Barre-réttindum frá Barreworks London (2019) og 200 tíma jógakennaranámi (2020).
Heading 3
Mynd: Lilja Birgisdóttir
Yelena Arakelow
Kennari
Yelena Arakelow, fædd 1993 í Zürich (CH) er danslistakona á uppleið og hefur aðsetur í Reykjavík (IS) síðan 2015. Hún er með BA gráðu í listdansi frá Listaháskóla Íslands.
Þverfaglegt verk hennar um líkamlega tilveru og eftirvæntingu í dansi hefur verið sýnt í Listasafni Reykjanesbæjar (2021), flutt á UNM Iceland (2022), Plöntutið (2021) sýningu Tanzhaus Zürich (2020), Nuuk Nordic (2021) og International Dance Festival Lettlandi. (2020). Hún starfar sem dansari hjá Steinunni Ketilsdóttur og er prófessor í spuna við Listaháskóla Íslands.
y.arakelow@gmail.com
https://yelenaarakelow.com/
https://www.instagram.com/sthwhateverornot/