Skólagjöld
SYSTKINAAFSLÁTTUR
Eitt barn greiðir fullt gjald og systkini fá 30% afslátt af skólagjöldunum. Afslátturinn kemur sjálfkrafa inn þegar systkini eru skráð í gengum skráningarkerfið, Sportabler. Ef systkini eru í KLS og Óskandi skal hafa samband við skrifstofu.
FRÍSTUNDASTYRKUR
Hægt er að nýta frístundastyrk fyrir öll námskeið sem sem eru 10 vikur eða lengri fyrir nemendur á aldrinum 6-18 ára.
Frístundastyrkur Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Mosfellsbæjar eru tengdir við skráningarkerfið Sportabler. Þegar nemendur eru skráðir þarf að haka við frístundastyrkinn og setja þá upphæð sem á að nýta. Í öðrum bæjarfélögum þarf að greiða skólagjöldin og framvísa kvittun.
Nánari upplýsingar um frístundastyrki:
Reykjavík – https://reykjavik.is/thjonusta/fristundakortid
Kópavogur – https://www.kopavogur.is/is/ibuar/ithrottir-utivist/fristundastyrkir
Mosfellsbær – https://www.mos.is/thjonusta/ithrotta-og-tomstundastarf/fristundaavisun/
Hafnarfjörður – https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/ithrottir-og-utivera/fristundastyrkir/
Garðabær – https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/hvatapeningar/
Seltjarnarnes – http://www.seltjarnarnes.is/thjonusta/ithrottirogtomstundir/styrkir/
Upplýsingar um námið og hópaskiptingu er að finna undir námsframboð.